Skýrsla OECD um viðbrögð íslenskra stjórnvalda við mútubrotum
Frumkvæðismál (2101027)
Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd
Nefndarfundir
Dagsetning | Fundur | Bókun |
---|---|---|
18.01.2021 | 27. fundur stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar | Skýrsla OECD um viðbrögð íslenskra stjórnvalda við mútubrotum Nefndin tók fyrir tillögu formanns um upplýsingabeiðni til dómsmálaráðuneytis í tengslum við umfjöllun nefndarinnar um skýrslu OECD um viðbrögð íslenskra stjórnvalda við mútubrotum. Enginn hreyfði andmælum og var tillagan samþykkt. |
13.01.2021 | 25. fundur stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar | Skýrsla OECD um viðbrögð íslenskra stjórnvalda við mútubrotum Á fund nefndarinnar mættu Ragna Bjarnadóttir skrifstofustjóri og Kjartan Ólafsson frá dómsmálaráðuneyti. Gerðu þau grein fyrir efni skýrslunnar og svöruðu spurningum nefndarmanna. Þá mætti á fund nefndarinnar Árni Múli Jónasson frá Íslandsdeild Transparency International. Gerðu hann grein fyrir sjónarmiðum við málið og svaraði spurningum nefndarmanna. |